Föstudagur 28. nóvember 2014 kl. 14:50

Vox Felix með jólatónleika

– fluttu „Geimferðalangur“ í Sjónvarpi Víkurfrétta

Jólatónleikar ungmennakórsins Vox Felix verða haldnir í Keflavíkurkirkju sunnudagskvöldið 7. desember kl. 20:00. Að sögn Arnórs Vilbergssonar stjórnanda og undirleikara kórsins þá verða þar flutt jólalög í bland við annan ljúfan söng.

Aðgangseyrir að tónleikunum er 1000 krónur en vert er að taka fram að ekki er tekið við greiðslukortum við innganginn.

Sjónvarp Víkurfrétta kíkti við á æfingu hjá ungmennakórnum á dögunum og hljóð- og myndritaði eitt lag. Með því að smella á meðfylgjandi myndskeið má sjá og heyra Vox Felix flytja lagið Geimferðalangur. Njótið vel og kíkið á tónleikana 7. des. nk.