Föstudagur 26. apríl 2013 kl. 14:05

VefTV: Valdimar og Lúðrasveitin í Andrews á morgun

Hljómsveitin Valdimar mun ásamt Lúðrasveit Tónlistarskóla Reykjanesbæjar koma fram á tónleikum í Andrews leikhúsi á Ásbrú á morgun, þann 27. apríl næstkomandi. Flutt verða lög af tveimur fyrstu plötum hljómsveitarinnar í nýjum og stórglæsilegum lúðrasveitarbúningi.

Lúðrasveit Tónlistarskólans er skipuð 40 afbragðs nemendum og leikur undir styrkri stjórn Karenar Sturlaugsson. Hljómsveitina Valdimar þarf vart að kynna. Árið 2010 spruttu þeir fram á sjónarsviðið með útgáfu plötunnar Undraland og urðu í framhaldi af því fljótlega ein af vinsælustu hljómsveitum landsins. Í fyrra gáfu þeir svo út plötuna Um Stund sem fékk gríðarlega góðar viðtökur frá gagnrýnendum og naut mikilla vinsælda.

Miðasala er á mid.is.