Mánudagur 10. júní 2013 kl. 09:47

VefTV: Jón Jónsson ánægður með Keflavik Music Festival

Jón ræddi við Víkurfréttamenn eftir tónleikana.

Tónlistarmaðurinn Jón Jónsson var mjög ánægður með Keflavík Music Festival  en hann var meðal þeirra tónlistarmanna sem komu fram í Reykjaneshöllinni á föstudagskvöldið.

Jón lofaði aðstæður í Reykjaneshöllinni, fannst sviðið glæsilegt og áhorfendur góðir. Jón flutti ásamt hljómsveit sinni nokkur lög við góðar undirtektir tónleikagesta.

Fréttamenn Víkurfrétta í Reykjaneshöllinni, þeir Páll Orri Pálsson og Ólafur Andri Magnússon hittu Jón eftir tónleika og ræddu við hann.