Sunnudagur 24. febrúar 2019 kl. 15:04

Þrjár nýjar sýningar í Duus Safnahúsum

Þrjár nýjar sýningar hafa opnað í Duus Safnahúsum, tvær á vegum Listasafns Reykjanesbæjar og ein á vegum Byggðasafns Reykjanesbæjar.
 
Listasafn Reykjanesbæjar opnaði á dögunum sýningu á verkum Guðjóns Ketilssonar. Sýningin ber heitið TEIKN og sýningarstjóri er Aðalsteinn Ingólfsson. Í sýningarskrá má m.a. sjá texta eftir Sjón.  Listamaðurinn og sýningarstjórinn verða með leiðsögn sunnudaginn 10.mars kl.15.
 
Við sama tilefni var opnuð í Bíósal sýning á ljósmyndum úr safneign Listasafnsins. Sýningin ber heitið LJÓS OG TÍMI og sýningarstjóri er Inga Þórey Jóhannsdóttir.
 
Einnig opnaði Byggðasafn Reykjanesbæjar ljósmyndsýninguna FÓLK Í KAUPSTAÐ. Á sýningunni gfur að líta  örlítið sýnishorn af ljósmynum í eigu Byggðasafnsin. Þema sýningarinnar er fólk og fjölbreytt mannlíf í kaupstaðnum Keflavík og nágrannbænum Njarðvík á árunum 1944 til 1994. Sýningarstjóri og ljósmyndari verða með leiðsögn sunnudaginn 10.mars kl.14.
 
Safnið er opið alla daga frá 12-17 og sýningarnar standa til 22.apríl.