Föstudagur 9. febrúar 2018 kl. 11:00

Telur mikilvægt að bæjaryfirvöld staldri við

- Hollvinasamtök safna undirskriftum gegn niðurrifi Sundhallar Keflavíkur

Hollvinasamtök Sundhallar Keflavíkur hafa verið stofnuð og hafin er söfnun undirskrifta undir áskorun til bæjaryfirvalda í Reykjanesbæ um að fresta afgreiðslu breytingar á deiliskipulagi á svæðinu sem heimilar niðurrif Sundhallar Keflavíkur. Hollvinir Sundhallarinnar vísa til bréfs Minjastofnunar Íslands til skipulagsyfirvalda, þar óskað hefur verið eftir frestun svo tækifæri gefist til að finna húsinu verðugt hlutverk og varðveita.
 
Hollvinir Sundhallar Keflavíkur héldu fjölmennan íbúafund í bíósal Duus Safnahúsa sl. fimmtudag. Þar voru flutt erindi um Sundhöll Keflavíkur og um verndun gamalla húsa. Flutt var erindi um Guðjón Samúelsson, húsameistara ríkisins, sem m.a. teiknaði Sundhöll Keflavíkur og tvær aðrar byggingar í Keflavík, fyrstu byggingu sjúkrahússins og Myllubakkaskóla.
 
Pétur Ármannsson arkitekt flutti erindi á fundinum og sagði húsið hefði ótvírætt byggingar- og menningarsögulegt gildi en allir sem töluðu á fundinum í gær töluðu fyrir því að Sundhöll Keflavíkur fái að standa og hún fái verðugt hlutverk á ný.
 
Ragnheiður Elín Árnadóttir, fv. ráðherra, telur mikilvægt að bæjaryfirvöld staldri við og endurskoði áform sem heimila niðurrif byggingarinnar. Nú verði ráðist í söfnun undirskrifta og þær afhentar áður en viðkomandi yfirvöld þurfa að taka sína ákvörðun.