Sunnudagur 12. apríl 2015 kl. 08:00

Svipmyndir úr starfshlaupi FS 2015

Föstudaginn 27. mars fór Starfshlaup FS fram í 20. sinn en þessi keppni fór fyrst fram árið 1994.

Fyrir þá sem ekki þekkja starfshlaupið þá reyna nemendur með sér í n.k. boðhlaupi þar sem keppt er í flestum þeim námsgreinum sem kenndar eru við skólann auk ýmis konar þrauta.  Að þessu sinni kepptu fimm lið í hlaupinu en í hverju liði eru nokkrir tugir keppenda.  Fyrir hverju liði fara nokkrir fyrirliðar sem koma úr hópi væntanlegra útskriftarnemenda. Keppnin var geysispennandi í ár og úrslitin réðust ekki fyrr en í síðustu þrautunum.

Þó Starfshlaupið fari alltaf fram síðasta kennsludag fyrir páska er það farið að hafa nokkurn aðdraganda. Í ár var nokkrum sinnum keppt á sal í hádeginu síðustu vikurnar fyrir keppnina sjálfa. Þar var m.a. keppt í spurningakeppni, þrautakeppni, bekkpressu og Sing Star. Liðin taka stigin síðan með sér í sjálft Starfshlaupið. Alltaf verða einhverjar breytingar milli ára, einhverjar þrautir og greinar detta út og aðrar koma inn.

Keppnin sjálf byrjaði í Íþróttahúsinu þar sem keppt var í reiptogi, badminton, stultuhlaupi og fleiri greinum. Síðan var synt, hjólað og hlaupið en að því loknu þeystu keppendur inn í skólann þar sem liðin hlupu milli kennslustofa og leystu verkefni auk þess að leysa ýmsar þrautir á göngum. Keppnin endaði síðan á sal þar sem liðin dönsuðu, léku o.fl.  Lokaþrautin var svo kappát kennara sem vekur alltaf mikla kátinu og spennu meðal áhorfenda.

Eins og áður sagði var keppnin mjög jöfn að þessu sinni sem hefur reyndar verið raunin undanfarin ár. Að lokum fór svo að Appelsínugula liðið vann en Græna liðið kom þar rétt á eftir og hin liðin voru ekki langt á eftir. Það var því Appelsínugula liðið sem hlaut Starfshlaupsbikarinn og pítsuveislu í verðlaun. Sjá má úrslit í einstökum greinum neðst í fréttinni.

Umsjónarmenn Starfshlaupsins eru íþróttakennararnir Gunnar Magnús Jónsson og Kristjana Hildur Gunnarsdóttir (Kiddý) og eiga þau sannarlega hrós skilið fyrir skipulagningu og framkvæmd hlaupsins. Þá er ekki síður ástæða til að óska fyrirliðum allra liðanna til hamingju með frammistöðuna og þeirra vinnu. Síðast en ekki síst eru það auðvitað allir þátttakendur sem taka þátt í að gera þennan dag jafn skemmtilegan og hann er.