Mánudagur 31. desember 2012 kl. 08:00

Svipmyndir úr jólasýningu Fimleikadeildar Keflavíkur

Fimleikadeild Keflavíkur hélt árlega jólasýningu sína á dögunum og að venju var sýningin hin glæsilegasta. Öllu var tjaldað til og iðkendur deildarinnar á öllum aldri stóðu sig með stakri prýði enda kraftmiklir og duglegir krakkar þar á ferð.

Víkurfréttir voru á staðnum og tóku upp alla sýninguna á myndband. Hér er eitt sýnishorn úr sýningunni þar sem stelpurnar þeirra Ásu og Hófíar sýndu hvað þær hafa verið að læra í vetur.