Fimmtudagur 27. febrúar 2014 kl. 17:00

SVF: Þemadagar og loftrýmisgæsla

Sjónvarp Víkurfrétta verður á fjölbreyttum nótum í kvöld. Í fyrri hluta þáttarins kíkjum við á þemadaga í Fjölbrautaskóla Suðurnesja sem fóru fram í síðustu viku. Við förum í eldhúsið hjá Menu á Ásbrú þar sem kokkarnir voru að elda yfir 1000 máltíðir á sólarhring fyrir þrjá heri sem höfðu aðsetur á Keflavíkurflugvelli á meðan loftrýmisgæslan og sameiginlegt þjálfunarverkefni norska, sænska og finnska hersins fór fram hér á landi undir merkjum Iceland Air Meet 2014.