Laugardagur 8. mars 2014 kl. 20:04

SVF: Miðtúnsróló verður útikennslusvæði

Reykjanesbær hefur afhent Myllubakkaskóla í Keflavík Miðtúnsróló undir útikennslusvæði fyrir skólann. Magnea Guðmundsdóttir formaður umhverfis- og skipulagsráðs Reykjanesbæjar afhenti svæðið formlega en Eðvarð Þór Eðvarðsson, skólastjóri, tók við því fyrir hönd Myllubakkaskóla.
Í tilefni dagsins fjölmenntu allir nemendur Myllubakkaskóla að Miðtúnsróló í skrúðgöngu og tóku þátt í táknrænni athöfn í tilefni dagsins.

Að sögn Þorvarðar Guðmundssonar kennara í Myllubakkaskóla mun tilkoma útikennslusvæðisins breyta miklu fyrir nemendur í skólanum auk þess sem Miðtúnsróló verður að loknum breytingum bæjarprýði, íbúum jafnt ungum sem öldnum til ánægju og yndisauka. Gagngerar endurbætur verða gerðar á Miðtúnsróló til að laga hann að nýju hlutverki. Settar verða skjólmanir, klifurtæki, útieldstæði, tyrft og plantað trjám líkt og tilheyrir á skemmtilegur útikennslusvæði. Stefnt er að því að gera endurbætur á vallarhúsinu þannig að það nýtist einnig sem eðlilegur hluti af svæðinu.

Myllubakkaskóli fær Miðtúnsróló // Sjónvarp Víkurfrétta // 4. þáttur 2014