Sunnudagur 13. apríl 2014 kl. 09:00

SVF: Hljómahöll er startkapall

­ - segir tónlistarmaðurinn Páll Óskar.

„Besta tilfinningin í þessu húsi er að þetta er svona startkapall. Þetta er upphaf að einhverju sem á bara eftir að stækka og verða íburðarmeira og flottara,“ segir Páll Óskar Hjálmtýsson tónlistarmaður um Hljómahöll og Rokksafn Íslands.

Páll Óskar hefur afhent Rokksafni Íslands alla sérsaumaða búninga sína, auk gullplatna og ýmissa aðra muna. Hugmyndin er að gera sérsýningu úr munum Páls Óskars, þó svo hún hafi ekki verið tímasett.

Páll Óskar Hjálmtýsson // Opnun Hljómahallar