SVF: Handaganga á Hafnargötu
– rætt við Maríu Óladóttur í Sjónvarpi Víkurfrétta
Ungmenni úr Fimleikadeild Keflavíkur öfluðu fjár til Svíþjóðarfarar með því að ganga á höndum upp og niður Hafnargötuna í Keflavík. Uppátækið tókst vel þrátt fyrir talsverða ringningu og vind þegar handagangan var framkvæmd.
Sjónvarp Víkurfrétta fylgdist með og ræddi við Maríu Óladóttur hjá fimleikadeildinni um ferðina til Svíþjóðar.