Sunnudagur 5. maí 2019 kl. 20:30

Suður með sjó: Slaki aðeins á þegar kemur að samfélagsmiðlum

- Margrét Knútsdóttir ljósmóðir er í viðtali við Suður með sjó, nýjan viðtalsþátt Sjónvarps Víkurfrétta

Margrét Knútsdóttir, ljósmóðir á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja, er gestur okkar í Suður með sjó á Hringbraut og vf.is að þessu sinni. Þátturinn er sýndur kl. 20:30 á Hringbraut og endursýndur á tveggja tíma fresti í sólarhring.
 
„Ég segi stundum við verðandi mæður að hætta að googla og leggja frá sér tölvuna. Það getur stundum ruglað þær og valdið þeim kvíða þegar þær eru að leita sér upplýsinga á vefnum. Það eru breyttir tímar en áður fékkstu kannski þessar sömu upplýsingar beint frá mömmu þinni eða tengdamömmu“. 
 
Margrét leggur einnig áherslu á að nýbakaðar mæður slaki aðeins á þegar kemur að samfélagsmiðlum og þær séu ekki sífellt að rjúfa augnsambandið milli móður og barns með því að stinga snjallsímanum þar á milli til að taka myndir.
 
Fæðingum á fæðingardeildinni á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja í Reykjanesbæ hefur fækkað mikið frá því sem var áður. Fæðingar voru áður um 300 á ári en eru í dag um 100. Það skýrist af því að þær konur sem fæða hér suðurfrá eru ekki í áhættuhópi og vilja fæða á náttúrulegan hátt. Verðandi mæður sem eru í áhættuhópi þurfa hins vegar að fæða á Landspítalanum.
 
„Já, við græjum þetta bara sjálfar þegar um eðlilegar fæðingar er að ræða en ef eitthvað kemur upp á þá erum við í góðu sambandi við Landsspítalann,“ segir Margrét m.a. í áhugaverðu viðtali við Suður með sjó.