Sunnudagur 16. nóvember 2014 kl. 14:05

Sjónvarp Víkurfrétta: Fjör í Bláa lóns eldhúsi og Airwaves

Villibráðarkvöld á Lava veitingastaðnum í Bláa Lóninu er einn vinsælasti viðburðurinn ár hver og matreiðslumeistararnir segja þetta skemmtilegastu helgina í eldhúsinu.  Það er líka fjör í Bláa lóninu þegar Tónlistarhátíðin vinsæla, Iceland Airwaves, mætir á staðinn.

Sjónvarp Víkurfrétta var á villibráðarkvöldi og eins á tónlistarhátíðinni og hér er sjónvarpsinnslag frá þessum viðburðum og nokkrar myndir frá fjörinu.