Mánudagur 1. febrúar 2016 kl. 08:43

Sjónvarp VF: Uppboð á fiski veltir 32 milljörðum

- nýjasti þáttur SVF heimsækir FMS og RSF

Reiknistofa fiskmarkaða [RSF] hefur aðsetur í Reykjanesbæ en fyrirtækið velti um 32 milljörðum króna á síðasta ári í viðskiptum með fisk. Reiknistofa fiskmarkaða hf. heldur utanum öll uppboð fiskmarkaða og sér um greiðslumiðlun milli viðskiptaaðila. Að jafnaði er verið að bjóða upp um 400 tonn á dag hjá 26 fiskmörkuðum allt í kringum landið sem fá fiskinn frá allt að 57 löndunarhöfnum.

Fiskmarkaður Suðurnesja [FMS] er stór á meðal  á Íslandi og með starfsstöðvar í Grindavík, Hafnarfirði, Ísafirði, Höfn og Sandgerði þar sem aðalskrifstofa markaðarins er.

Hér að neðan er innslag Sjónvarps Víkurfrétta um fyrirtækin.