Mánudagur 11. apríl 2016 kl. 07:24

Sjónvarp VF: Jóhanna Ruth sýnir hæfileikana í heimabyggð

- sjáið innslag Sjónvarps Víkurfrétta um IGT#3 stjörnuna

Jóhanna Ruth Luna Jose Reykjanesbæ bar sigur úr býtum í Ísland Got Talent um síðustu helgi. Hún fær að launum Íslandsfrægð og tíu milljónir króna. Hin hæfileikaríka Jóhanna, sem er 14 ára gömul, grét af gleði þegar úrslitin voru ljós.

Jóhanna Ruth hafði hins vegar jafnað sig eftir úrslitakvöldið þegar við hittum hana í Myllubakkaskóla í Keflavík þar sem hún er nemandi. Nemendur skólans komu allir saman á sal og hlustuðu þar á flutning Jóhönnu á sigurlaginu úr keppninni.

Við vorum þar eins og sjá má hér að neðan: