Sunnudagur 18. janúar 2015 kl. 13:24

Sjónvarp: Þetta er hún Fida Abu Libdeh

– Maður ársins á Suðurnesjum 2014 í viðtali við Sjónvarp Víkurfrétta.

Fida Abu Libdeh er frumkvöðull á Ásbrú í Reykjanesbæ sem kom til Íslands þegar hún var 16 ára gömul. Fida er fædd og uppalin í Palestínu. Henni gekk illa að fóta sig í íslenska menntakerfinu eftir komuna til landsins. Hún vildi mennta sig meira og gera meira á lífsleiðinni en var komin í öngstræti þegar hún uppgötvaði háskólabrú í Keili á Ásbrú. Þar var hún greind með lesblindu og fékk viðeigandi hjálp til að halda áfram að læra. Það gerði hún með stæl, lauk stúdentsprófi og síðan í framhaldinu þriggja ára háskólanámi í umhverfis- og orkutæknifræði.

Hún stofnaði síðan frumkvöðlafyrirtæki með skólafélaga sínum Burkna Pálssyni og nú um áramótin kom vara þeirra á markaðinn en það er hágæða kísilfæðubótarefni, unnið úr náttúrulegum íslenskum jarðhitakísli. Hún lét ekki þar við sitja á menntunarbrautinni heldur fór samhliða vinnu sinni í nýja fyrirtækinu í MBA nám í Háskólanum í Reykjavík sem hún klárar næsta vor. Það var ekki alveg nóg því hún bætti við þriðja barninu en hún er gift Jóni Kristni Ingasyni viðskiptafræðingi.

Fjölskyldan býr á Ásbrú og var með fyrstu íbúunum sem flutti þangað árið 2007.

Sjónvarp Víkurfrétta tók hús á Fidu í vikunni og í þætti kvöldsins heimsækjum við Fidu í fyrirtækið hennar, GeoSilica, og fáum að kynnast þessari kraftmiklu Suðurnesjakonu.