Laugardagur 20. apríl 2019 kl. 14:32

Sjónvarp: Styrkja Reykjanes sem áfangastað

Bláa lónið hf. og Reykjanes Unesco Global Geopark (RGP) hafa ákveðið að taka upp samstarf sem stuðlar að markmiðum Jarðvangsins á Reykjanesi og sveitarfélaganna fjögurra sem eru innan hans. Til staðfestingar því var samstarfsyfirlýsing undirrituð í Bláa Lóninu í vikunnu að viðstöddum forsvarsmönnum sveitarfélaganna á Suðurnesjum, Jarðvangsins og Bláa Lónsins.
 
Markmið samstarfsins er  m.a. að styrkja Reykjanesið sem áfangastað, stuðla að sjálfbærri nýtingu, vinna að bestu aðferðum til uppbyggingar í sátt við náttúru,  bæta þekkingu, viðhorf og verndarstöðu jarðminja á svæðunum, hvetja til nýjunga í náttúrutengdri sköpun og draga fram og viðhalda menningararfleifð svæðanna.
 
Af þessu tilefni hefur Bláa lónið m.a. stofnað til félags með Grétu Súsönnu Fjeldsted en hún er eini ábúandinn við Reykjanesvita í dag. Félagið mun m.a. sjá um uppbyggingu og rekstur þjónustumiðstöðvar við Reykjanesvita.
 
„Auk þess að efla vandaða þjónustuaðstöðu á vestanverðu Reykjanesi, sem lengi hefur skort, munum við aðstoða við merkingar svæðisins. Þá mun starfsmaður frá okkur hafa umsjón með svæðinu í samstarfi við Jarðvanginn“, segir Grímur Sæmundsen, forstjóri Bláa lónsins.
 
„Það er gríðarlega mikilvægt fyrir Jarðvanginn og sveitarfélögin öll að fá sterkasta fyrirtæki okkar á Suðurnesjum til þessa mikilvæga samstarfs. Það gefur Jarðvanginum, og sveitarfélögunum sem að honum standa, byr undir báða vængi m.a. til að stórbæta aðstöðu, draga fram og vernda sérstöðu Reykjaness og vinna að bestu aðferðum til uppbyggingar í sátt við náttúruna,“ segir Ásgeir Eiríksson, formaður stjórnar Reykjanes Global Unesco Geopark og bæjarstjóri í Vogum.