Þriðjudagur 11. apríl 2017 kl. 09:00

Sjónvarp: Malarvöllurinn í endurnýjun lífdaga

Grasvöllurinn aldrei verið betri - knattspyrna í Keflavík

Það eru sjálfsagt ekki margir malarvellir í notkun á Íslandi um þessar mundir þar sem gervigras er alls ráðandi í fótboltanum. Strákarnir í 3. flokki í Keflavík hafa þó fengið að kynnast mölinni sálugu að undanförnu en þeir æfa nú á gamla malarvellinum við Hringbraut sem ekki hefur verið notaður frá síðustu aldamótum.

Jóhann B. Guðmundsson þjálfari piltanna segir þá hafa gott af því að reyna fyrir sér á mölinni en þaðan á hann sjálfur góðar minningar. Strákarnir þurfa að aðlagast mölinni en þeir eru vanir að spila á sléttu undirlagi þar sem boltinn fer þangað sem honum er ætlað. Á mölinni eru hins vegar alls kyns hindranir sem breyta ferðalagi boltans.

„Maður þarf að hugsa langt til baka til þess að fá þessa tilfinningu aftur, það er mjög gaman að þessu. Ég held að þeir hafi ekki áttað sig á því að þetta var einu sinni fótboltavöllur. Þetta eru flottir peyjar en ég held að þeir hafi ekki alveg áttað sig á því hvað þeir voru að fara út í til að byrja með,“ segir þjálfarinn.

„Þetta er allt annað en að vera á gervigrasinu í hlýjunni. Þeir þurfa að leggja harðar að sér á mölinni. Þeir sem eru tæknilega góðir, það hverfur aðeins hér. Við erum líka að leita eftir því að fá þetta íslenska í okkur aftur, að aðstæður séu ekki alltaf fullkomnar. Ég hugsa að þeir eigi eftir að græða á þessu,“ bætir Jóhann við.

Þó svo að iðkendur hafi sjálfsagt gott af því að fara út og spila fótbolta á þessu óvenjulega undirlagi þá er staðan sú að ekki er hægt að hýsa alla fótboltaiðkendur Keflavíkur og Njarðvíkur í Reykjaneshöllinni. Fjöldi iðkenda hefur aukist mikið undanfarin ár og því eru æfingatímar af skornum skammti. Þessir strákar sem æfa á mölinni eru til að mynda með æfingu fyrir skóla einu sinni í viku og svo klukkan 21:30 eitt kvöldið.

Sumarbragur á grasvellinum

Grasið á Nettóvellinum hefur sjaldan litið eins vel út og kemur einstaklega vel undan vetri. Jón G. Benediktsson, formaður knattspyrnudeildar Keflavíkur, segir að mikil vinna og fjármunir hafi verið lögð í að gera völlinn sem bestan. „Ég held að völlurinn hafi aldrei verið betri og hann er bara núna eins og hann er vanalega í júlí.“ Jón segir að deildin verði að nýta þá aðstöðu sem til er. Hann hefur mikla trú á því að farið verði í að bæta aðstöðuna innan tíðar.

Þeir Sebastian Freyr Karlsson og Björn Aron Björnsson, leikmenn 3. flokks, sögðu í samtali við Víkurfréttir að þeir hefðu þurft smá tíma til þess að venjast mölinni. Þeir vissu sama og ekkert um svona velli en höfðu heyrt sögur. Þjálfarinn sagði þeim að mæta í „drasl“ takkaskóm á fyrstu æfingu. Strákarnir voru ekki alveg sammála um hvort það væri spennandi að fara í tæklingar á mölinni, en Sebastian var grjótharður á stuttbuxunum á æfingu og sló ekkert af. Þeir segjast græða mikið á því að spila á mölinni og spila allt öðruvísi fótbolta en þeir eru vanir.