Þriðjudagur 30. ágúst 2016 kl. 10:34

Sjónvarp: Kántrýið ræður ríkjum í Andrews á Ljósanótt

- Með blik í auga sjötta árið í röð

Sveitasöngvar eru viðfangsefni hátíðartónleika Ljósanætur í Reykjanesbæ þetta árið. Tónleikarnir eru betur þekktir sem „Með blik í auga“ og hafa öðlast fastan sess í dagskrá Ljósanætur.

Sveitatónlist verður í forgrunni að þessu sinni undir yfirskriftinni: Hvernig ertu í Kántrýinu? og fara söngvararnir Björgvin Halldórsson, Stefanía Svavarsdóttir, Jóhanna Guðrún og Eyjólfur Kristjánsson fyrir stórhljómsveit undir stjórn Arnórs Vilbergssonar.

Ljóst er að það verður tekið á því þegar helstu smellir kántrýsins verða fluttir, gamlir og nýir, í bland við góðar sögur og skemmtilegheit.

Frumsýning er miðvikudaginn 31. ágúst og tvær sýningar verða sunnudaginn 4. september. Sýningar fara fram í Andrews leikhúsinu á Ásbrú.

Sjónvarp Víkurfrétta tók Kristján Jóhannsson, kynni hátíðartónleikanna, tali um tónleikana.