Föstudagur 5. maí 2017 kl. 06:00

Sjónvarp: Hljómlist án landamæra

Á sumardaginn fyrsta fóru fram einstakir tónleikar í Hljómahöll „Hljómlist án landamæra“ þar sem fram komu fatlaðir og ófatlaðir tónlistarmenn frá Suðurnesjum, Selfossi og Akranesi, en tónleikarnir voru haldnir í fyrsta sinn í fyrra.

Fram komu Salka Sól og Embla Sól Björgvinsdóttir, Salka Sól og Davíð Már Guðmundsson við undirleik Rokksveitarinnar, Már Gunnarsson, Vox Felix undir stjórn Arnórs Vilbergssonar og Lára Ingimundardóttir, Sönghópurinn Gimsteinar, Karitas Harpa Davíðsdóttir og Kristín Þóra Albertsdóttir við undirleik Tómasar Guðmundssonar og Baggabandið ásamt Evu Dögg Héðinsdóttur, Frey Karlssyni, Heiðrúnu Hermannsdóttur, Jóni Agnarssyni og Stefáni Trausta Rafnssyni og síðast en ekki síst danshópur frá Danskompaní. Kynnar á tónleikunum voru skemmtikraftarnir Guðjón Davíð Karlsson, betur þekktur sem Gói og Hallgrímur Ólafsson.

Tónleikarnir eru samstarfsverkefni sveitarfélaganna á Suðurnesjum, Miðstöðvar símenntunar á Suðurnesjum og Listar án landamæra, en er styrkt af Uppbyggingarsjóði Suðurnesja.