Fimmtudagur 22. september 2016 kl. 11:24

Sjónvarp: Fjölbraut í 40 ár

- og samgöngubætur í nýjasta þætti Sjónvarps Víkurfrétta

Sjónvarp Víkurfrétta er á dagskrá ÍNN í kvöld kl. 21:30. Í þessum nýjasta þætti gefum við Fjölbrautaskóla Suðurnesja dágóðan tíma í tilefni þess að skólinn er 40 ára um þessar mundir. Í heimsókn okkar í skólann voru nemendur, kennarar og stjórnendur teknir tali.

Við birtum einnig brot úr viðtali okkar við Ísak E. Kristinsson, talsmann Stopp, hingað og ekki lengra. Þá er fjallað um hraðlest milli Keflavíkurflugvallar og miðborgar Reykjavíkur.

Þátturinn er aðgengilegur í spilaranum hér að ofan í háskerpu.