Mánudagur 12. desember 2016 kl. 07:00

Sjónvarp: Bylting í þjónustu við ferðamenn á Reykjanesi

- Þjónustuhús opnað við Reykjanesvita sumarið 2017

Bylting verður í þjónustu við ferðamenn á Reykjanesi næsta sumar þegar þjónustumiðstöð verður opnuð við Reykjanesvita. Kjartan Már Kjartansson bæjarstjóri Reykjanesbæjar og Rúnar Sigurvinsson frá Reykjanes Aurora tóku fyrstu skóflustungu að húsinu síðasta föstudag. Áætlað er að þjónustumiðstöðin verði tilbúin í sumarbyrjun 2017.
    
Það er félagið Reykjanes Aurora ehf. sem stendur að þessum framkvæmdum en það er í eigu þriggja ungra Keflvíkinga, Rúnar, Örvars Þórs Sigurðssonar og Guðna Sigurbjörns Sigurðssonar. Upphaflega fengu þeir félagar hugmynd að byggingu smáhýsa úr gleri í nágrenni Reykjanesvita sem þeir hafa kynnt en þeir ákváðu síðan að taka þátt í útboði að þjónustuhúsi. Smáhýsin eru á teikniborðinu og þeir vonast til að komast í það verkefni eftir að þjónustuhúsið rís. Það er um að ræða 300 fermetra byggingu þar sem meðal annars verður veitingasala og snyrting en lengi hefur verið kvartað yfir því að nauðsynlega þjónustu hafi vantað á Reykjanesi. Reykjanes Geopark auglýsti í upphafi árs eftir áhugasömum aðilum að uppbyggingu ferðaþjónustu við Reykjanesvita og bárust fjögur tilboð. Svæðið er heimsótt af um 200.000 ferðamönnum á ári, að því er áætlanir gera ráð fyrir.
    
Að sögn Rúnars var hugað að því að byggingin félli sem best að náttúrunni við Reykjanesvita. Hann þakkaði við skóflustunguna Reykjanes Geopark, Uppbyggingasjóði Suðurnesja, sem hefur styrkt verkefnið og Reykjanesbæ. Athöfnina tileinkaði hann afa sínum, Guðfinni Sigurvinssyni fyrrum bæjarstjóra í Keflavík, sem jarðsettur var í vikunni. Kjartan Már bæjarstjóri sagði við sama tilefni að hann væri ánægður með að þjónustumiðstöð á þessum fjölsótta ferðamannastað væri loks að verða að veruleika.