Föstudagur 24. júní 2016 kl. 09:00

Sjónvarp: Ævintýragarður Helga Valdimarssonar

– Sjónvarp Víkurfrétta skoðaði listaverkagarð í Sveitarfélaginu Garði

Listamaðurinn Helgi Valdimarsson er með ævintýragarð við heimili sitt í Garðinum. Þar eru fjölmargar styttur sem Helgi hefur gert en þær ætlar hann að sýna og segja frá á Sólseturshátíð í Garðinum  um helgina. Við heimsóttum Helga og hann sagði okkur frá nokkrum verkum. Kíkjum í Garðinn…