Laugardagur 23. maí 2015 kl. 08:00

Sjónvarp: Á vortónleikum Söngsveitarinnar Víkinga

– Sjónvarp Víkurfrétta á tónleikum með hressum herramönnum

Söngsveitin Víkingar var með tónleika nú á dögunum. Annars vegar í Bíósal Duushúsanna þriðjudaginn 5. maí og fimmtudaginn 7. maí í Safnaðarheimilinu í Sandgerði. Að venju var boðið upp á fjölbreytta og skemmtilega dagskrá.

Sjónvarp Víkurfrétta kíkti við á tónleikunum í Duushúsum og tók upp eitt lag af handahófi.

Stjórnandi Víkinganna er Jóhann Smári Sævarsson og undirleikarar þeir Gunnlaugur Sigurðsson á gítar og Einar Gunnarsson á dragspil.