Laugardagur 23. maí 2015 kl. 07:00

Sjónvarp: Á vortónleikum Kvennakórs Suðurnesja

– Sjónvarp Víkurfrétta kíkti við á tónleikum kórsins

Kvennakór Suðurnesja hélt tvenna vortónleika í Bíósal Duushúsa á dögunum. Efnisskráin var fjölbreytt og skemmtileg en á henni má finna mambó, tangó, jass, ensk og amerísk þjóðlög og íslensk dægurlög.

Sjónvarp Víkurfrétta kom við á tónleikunum og tók upp eitt lag af handahófi úr dagskránni. Það má sjá og heyra hér að neðan.

Stjórnandi kórsins er Dagný Þórunn Jónsdóttir. Hljóðfæraleikarar eru Geirþrúður Fanney Bogadóttir á píanó og Birna Rúnarsdóttir á þverflautu.

Kórkonur héldu til Minneapolis í Bandaríkjunum síðasta haust og tóku þátt í Hátíð Leifs Eiríkssonar sem er samnorræn menningarhátíð, en mikið af innflytjendum frá öllum Norðurlöndum búa á svæðinu. Þar flutti kórinn íslenska tónlist; þjóðlög, dægurlög o.fl.

Núna er kórinn á allt annarri línu, að vísu fengu nokkur íslensk lög að fljóta með í byrjun auk þess sem þjóðlög og dægurlög frá Bretlandi og Ameríku voru flutt. Á seinni hluta tónleikanna tók við suðræn sveifla með mambó og tangó.