Sunnudagur 28. ágúst 2016 kl. 08:00

Risablöðrur í setningarathöfn Ljósanætur

- Sjónvarp Víkurfrétta ræddi við Valgerði Guðmundsdóttur menningarfulltrúa

„Það þarf fólk eins og þig“ söng Rúnar Júlíusson í vinsælu lagi og segja má að þessi lína gæti hæglega verið einkennislína Ljósanætur. Ljósanótt er ein af stærri bæjarhátíðum landsins og fer nú fram í 17. sinn dagana 1.-5. september nk.

Í sumar var sent út bréf til fjölda fyrirtækja á svæðinu og leitað eftir fjárhagslegum stuðningi við framkvæmd hátíðarinnar og hefur nú bæjarstjórinn Kjartan Már Kjartansson skrifað undir samninga við fjóra stærstu styrktaraðilana. Þeir eru Landsbankinn sem er helsti styrktaraðili Ljósanætur, Nettó sem styrkir dagskrá föstudagskvöldsins og barnadagskrána, Skólamatur sem gefur kjötsúpuna á föstudagskvöldinu og HS Orka sem lýsir upp Ljósanótt með því að fjármagna flugeldasýninguna.

Bæjarstjóri þakkaði fulltrúum þessara fyrirtækja sitt framlag og jafnframt hvatti hann þau fyrirtæki sem enn hafa ekki svarað bréfinu, að senda nú inn sem fyrst jákvæð svör og taka þannig þátt í að halda Ljósanótt sem einni bestu menningar- og fjölskylduhátíð landsins.
Undirbúningur hátíðarinnar er nú í fullum gangi og eru það starfsmenn Reykjanesbæjar sem stýra framkvæmd hennar. Við hlið þeirra starfar fjöldi öflugra samstarfsaðila og voru nokkrir þeirra mættir við þetta tilefni m.a. fulltrúar eftirfarandi hópa; Með blik í auga, Menningarfélag Keflavíkur, Menningarfélagið í Höfnum, KarfaN, Björgunarsveitin Suðurnes, Slysavarnardeildin Dagbjörg, Lögreglan og Brunavarnir Suðurnesja.

Setning Ljósanætur 2016 fer fram á fimmtudag í næstu viku. Þá verða risablöðrur notaðar á setningarhátíðinni. Hver skóli fær risablöðru í lit skólans í samræmi við þær blöðrusleppingar sem hafa verið undanfarin ár. Nemendur munu slá blöðrunum á milli sín við setningarathöfnina en á sama tíma verður risastórum Ljósanæturfána flaggað á þjóðhátíðarfánastönginni í skrúðgarðinum í Keflavík.