Laugardagur 12. október 2013 kl. 10:15

Myndband vikunnar: Bjargaði ungabarni frá drukknun

Aníka Mjöll Júlíusdóttir 10 ár hetja í viðtali

Við á Víkurfréttum höfum tekið aragrúa af myndböndum í gegnum tíðina. Nú höfum því farið af stað með nýjan lið þar sem við skoðum myndbandasafn okkar og deilum með lesendum gömlum myndbrotum.

Aníka Mjöll Júlíusdóttir hlaut viðurkenningu frá Rauða krossi Íslands fyrir hetjudáð þegar hún bjargaði ungu barni, Guðrúnu Maríu Geirdal, frá drukknun í Vatnaveröld í Reykjanesbæ í febrúar árið 2012.

Aníka Mjöll var á sundæfingu í Sundmiðstöðinni í Reykjanesbæ þegar hún vann björgunarafrekið. Rúmlega eins árs gömul stúlka hafði þá fallið í sundlaugina og var að því er virtist hætt komin þegar að Aníka Mjöll, þá tíu ára, sá litlu stúlkuna í lauginni. Aníka brást rétt við og synti strax að stúlkunni sem hún taldi þó fyrst að væri dúkka, enda var litla stúlkan ekki í sundfötum.

Aníka náði að koma stúlkunni upp á bakkann og þá var sundþjálfarinn kominn að og tók við litlu stúlkunni. Að sögn sjónarvotta var hún með meðvitund þegar hún kom upp á bakkann og snögg viðbrögð hafa sennilega komið í veg fyrir að ekki fór verr.

Hér að neðan er viðtal sem Víkurfréttir áttu við Aníku Mjöll daginn eftir björgunarafrekið.