Laugardagur 31. desember 2016 kl. 15:12

Myndband: Íþróttafólk ársins í viðtali

Yfirþjálfari ÍRB ræðir einnig árangurinn

Sjónvarp Víkurfrétta tók tali íþróttafólk Reykjanesbæjar árið 2016. Sundfólkið Sunneva Dögg Robertson og Þröstur Bjarnason voru kjörin á gamlársdag en þau áttu mjög góðu gengi að fagna á árinu sem er að líða.

Einnig var rætt við Steindór Gunnarsson yfirþjálfara ÍRB og hann fenginn til þess að útskýra þennan glæsta árangur sundfólksins.

Tengd frétt: Sundfólkið Sunneva og Þröstur íþróttfólk Reykjanesbæjar