Föstudagur 27. mars 2015 kl. 09:21

Kristín Júlla og menningarlífið

– sjónvarpsþáttur á menningarlegum nótum

Tólfti þátturinn af Sjónvarpi Víkurfrétta er kominn á vef Víkurfrétta. Þátturinn er á menningarlegum nótum að þessu sinni en við förum víða til að fanga menninguna.

Í þættinum fylgjum við Kristínu Júllu Kristjánsdóttur Edduverðlaunahafa í vinnuna. Við förum einnig á menningarviku í Grindavík, á æfingu fyrir hátíðartónleika Keflavíkurkirkju og skoðum krúttlega páskaunga í Myllubakkaskóla.

Í þættinum á ÍNN í gærkvöldi heyrðum í Jóhönnu Rut, sem fór með sigur af hólmi í söngkeppni Samfés á  dögunum. Því miður leyfir Youtube ekki söng Jóhönnu vegna höfundarréttarákvæða.