Þriðjudagur 26. desember 2017 kl. 06:00

Krefjandi en skemmtilegt í miklum vexti

Airport Associates á Keflavíkurflugvelli hefur vaxið mikið á tuttugu árum. Nýtt 2600 fermetra húsnæði tekið í notkun

„Þetta er krefjandi en skemmtilegt og mikið að gerast,“ segir Sigþór Kristinn Skúlason, framkvæmdastjóri Airport Associates en á tuttugu ára afmæli fyrirtækisins tók það í notkun nýja 2600 fermetra glæsibyggingu á þremur hæðum á Keflavíkurflugvelli í síðustu viku.

Í nýja húsnæðinu eru skrifstofur Airport Associates og UPS. Í því er einnig góð aðstaða fyrir starfsfólk og veglegt mötuneyti, auk ýmiss annars sem tengist starfsemi fyrirtækjanna. „Við hönnun byggingarinnar var lögð áhersla á að hafa góða aðstöðu fyrir starfsfólkið, meðal annars gott mötuneyti. Við erum t.d. með sturtur inn af öllum salernum, þurrkherbergi fyrir hlaðdeildir og hvíldaraðstöðu fyrir ræstideild og hlaðdeild, kennslustofu og lager. Þá er betri stofa fyrir flugáhafnir og gesti og aðstaða fyrir starfsfólk í flugumsjón („load control“). Með nýja húsnæðinu er húsnæði fyrirtækisins um sjö þúsund fermetrar í þremur byggingum auk þess sem fyrirtækið leigir aðstöðu í Flugstöð Leifs Eiríkssonar fyrir starfsfólk í farþegaþjónustu, starfsfólk í töskusal og í farangursþjónustu. 

Sigþór segir mikið vatn runnið til sjávar á tuttugu árum í starfseminni. Í sumar voru starfsmenn um sex hundruð, á háanna tíma, en eru nú um 500. Um helmingur starfsmanna fyrirtækisins eru af erlendu bergi brotnir. Talsvert af þeim fjölda dvelur í fjórum fjölbýlishúsum á Ásbrú sem fyrirtækið keypti, lang flestir Pólverjar. „Það hefur gengið vonum framar. Þetta er duglegt fólk og er ánægt hérna. Það fær fimm til sex sinnum hærri laun hér en í heimalandinu. Þetta verkefni, að fá starfsfólk frá útlöndum, hefur gengið vel. Við gætum þetta ekki án þeirra í þessum mikla vexti í starfseminni,“ segir Sigþór.

Tölurnar í rekstri Airport Associates eru ótrúlegar. „Fyrir tíu árum síðan afgreiddum við þrettán hundruð flugvélar á ári en á þessu ári afgreiðum við þrettán þúsund vélar og þjónustum rétt um 65 flugfélög. Mesta aukningin var eftir árið 2011 og eitt erfiðasta árið var 2016 en þá tókum við á móti miklum hluta af þessum erlendu starfsmönnum og þurftum að koma þeim fyrir á svæðinu. Í þessari miklu aukningu hefur það líka verið áskorun að kaupa ný flugafgreiðslutæki og vélar og í tengslum við það. Þá erum við með sex starfsmenn á verkstæði til að sinna viðhaldi á flugafgreiðslutækjum og tólum.“

Starfsemi Airport Associates byggir á þjónustu við flugfélög sem koma til Keflavíkurflugvallar bæði með farþegaþjónustu og flutninga (cargo) auk annars. Meðal 65 flugfélaga sem fyrirtækið hefur þjónustað eru Wow air, Easy Jet, British Airways, Air Norwegian, Delta Airlines, Bluebired Cargo og Wizz Air en öll þessi flugfélög hafa verið í miklum vexti undanfarin ár.

Hvernig leggst framtíðin í þig í fjörugri ferðaþjónustu á vinsælu Íslandi?

„Mjög vel. Isavia hefur gefið út farþegaspár og þær eru alltaf að verða betri og nákvæmari. Það er mikil áskorun að taka við 18% aukningu á næsta ári samkvæmt nýjustu spám ofan á alla þessa viðbót undanfarinna ára. Það er gríðarlega mikill vöxtur og þekkist ekki í nágrannalöndunum en við tökum á móti honum og stefnum að sjálfsögðu að því að standa okkur vel eins og hingað til.“

Eigendur fyrirtækisins á góðri stundu: f.v.: Heidi Johannsen, Sigþór K. Skúlason, Guðbjörg Astrid Skúladóttiir, Skúli Skúlason og Sigrún Faulk.



Nýja húsnæði fyrirtækisins er hið glæsilegasta og aðstaða fyrir starfsmenn og viðskiptavini til fyrirmyndar.



Kennslurými og veglegt eldhús er á nýja staðnum.

Meðal 65 flugfélaga sem fyrirtækið hefur þjónustað eru Wow air, Easy Jet, British Airways, Air Norwegian, Delta Airlines, Bluebired Cargo og Wizz Air en öll þessi flugfélög hafa verið í miklum vexti undanfarin ár.

Fjölmargir komu til að samfagna eigendum og starfsfólki opnun nýja húsnæðisins. Meðfylgjandi eru myndir í myndasafni frá því.

 

Airport Associates 20 ára