Laugardagur 3. október 2015 kl. 16:00

Jakkafatajóga á bókasafninu

– jóga fyrir alla sem sitja mikið

Jakkafatajóga er nýjung sem Ágústa Gizurardóttir kynnti í bókasafni Reykjanesbæjar fyrr í þessari viku. Kynningin var hluti af dagskrá Heilsu- og forvarnarviku bæjarfélagsins.

Jakkafatajóga er ekki bara fyrir þá sem vinna í jakkafötum heldur alla sem sitja mikið í vinnunni.