Mánudagur 12. september 2016 kl. 10:07

Hvað er Íris að fást við í listinni?

- sýningin „Mín eigin jörð“ í Gryfjunni í Duus

Sýningin „Mín eigin jörð“ opnaði í Gryfjunni í Duus Safnahúsum á vegum Listasafns Reykjanesbæjar á Ljósanótt og verður opin til 30. október nk. Þar er á ferðinni listakonan Íris Rós Söring með stóra keramik skúlptúra og nokkra minni „mixed media“ gripi. Einnig er sýnt myndband sem sýnir vinnslu listgripanna.

Íris lærði keramik og mixed media í Arhus kunstakademi og einnig lærði hún útlitshönnun í Kaupmannahöfn. Hún hefur tekið þátt í fjölda samsýninga, bæði hér heima og erlendis og m.a. tekið þátt í fjölda sýninga á vegum Handverks og hönnunar og setið þar í valnefnd.

Sjónvarp Víkurfrétta kíkti við á sýningunni á Ljósanótt og ræddi við listakonuna um verkin sem hún er að fást við.