Þriðjudagur 31. maí 2016 kl. 17:47

Fyrsta hráefnið fyrir kísilvinnslu í Helguvík komið

Fyrsti farm­ur­inn af hrá­efni fyr­ir nýtt kís­il­­ver United Silicon í Helgu­vík kom til hafnar í vikunni sem leið. Um var að ræða tæp­lega sex þúsund tonn af kvars sem er stein­teg­und og meðal grun­nefna sem notuð eru við kís­il­vinnsl­una.

Í næsta mánuði munu send­ing­ar af öðrum hrá­efn­um ber­ast og í lok júní er gert ráð fyr­ir að próf­an­ir á kísilverinu hefj­ist.

Farminum var skipað upp í höfninni í Helguvík og uppskipunin markar tímamót þar sem um er að ræða fyrsta hráefnið fyrir iðnaðarframleiðslu í Helguvík.

Fyrirhuguð starfsemi United Silicon er þegar farin að hafa áhrif fyrir hafnarsjóð Reykjaneshafnar.

Sjónvarp Víkurfrétta ræddi við Halldór Karl Hermannsson hafnarstjóra Reykjaneshafnar í Helguvík. Innslagið má sjá í spilaranum hér að ofan.