Laugardagur 30. mars 2013 kl. 10:00

Framleiða 7500 máltíðir á dag

Skólamatur í Reykjanesbæ framleiðir um 7500 máltíðir á hverjum degi fyrir börn í 32 grunnskólum og nokkrum leikskólum. Um 500 tonn af hráefni fara í gegnum eldhús fyrirtækisins í Keflavík.

Suðurnesjamagasín Víkurfrétta heimsótti Skólamat og ræddi við Axel Jónsson sem fékk hugmyndina og  stofnaði fyrirtækið fyrir nokkrum árum. Fyrirtækið hefur vaxið hratt á síðustu árum.