Mánudagur 25. júní 2012 kl. 16:38

Efnileg: Sparkaði mömmu tvisvar niður



Ástrós Brynjarsdóttir er 13 ára stúlka sem æfir taekwondo með Keflavík. Hún er með svarta beltið og ein efnilegasta taekwondo stúlka landsins. Hún er tvöfaldur Íslandsmeistari, árið 2011 og 2012. Hún keppti einnig á sínu fyrsta móti erlendis 2012, Norðurlandamóti þar sem hún fékk silfur og brons í tveimur greinum. Páll Orri Pálsson fréttamaður Víkurfrétta settist niður með henni og ræddi við hana um íþróttina taekwondo.