Þriðjudagur 25. desember 2012 kl. 15:37

CNN í Bláa lóninu og Leifsstöð

Hinn kunni sjónvarpsmaður, Richard Quest á CNN, var hér á landi fyrir fáeinum vikum að vinna um 10 mínútna innslag fyrir alþjóðlegu sjónvarpsstöðina CNN.

Hann kíkti m.a. í Bláa lónið og einnig var talsvert af efni tekið upp í Leifsstöð. Þar tók Quste m.a. tali Birki Hólm Guðnason, framkvæmdastjóra Icelandair.

Víkurfréttir voru á staðnum og í meðfylgjandi myndskeiði er viðtal Víkurfrétta við Richard Quest og svo innslögin tvö af CNN sett saman í eitt.