Fimmtudagur 25. júlí 2013 kl. 13:45

Björgun rússnesku Sukhoi vélarinnar - myndband

 

Björgunaraðgerðir við að flytja rússnesku flugvélina Sukhoi Superjet 100 sem magalenti á Keflavíkurflugvelli sl. sunnudagsmorgun gengu vel á þriðjudagskvöld. Starfsmenn Isavia notuðust við nýjan búnað sem komið var fyrir undir vængjum vélarinnar og þannig var henni lyft upp þegar lofti var blásið í búnaðinn. Kranabílar náðu síðan böndum sínum utan um vélina og náðu þannig að hífa hana upp enn frekar. Verkið gekk hægt en ve,l en rúmir fjórir klukkutímar liðu þangað til hægt var að setja hjólin undir vélina aftur. Rúmlega 50 manns komu að björgunaraðgerðum.

Vélin var tengd við rafmagn þannig að hægt væri að sleppa hjólabúnaði og tókst það með ágætum. Vélin var síðan dregin í burtu af dráttarbíl og nú situr hún á stæði 116 við flugskýli. Talsverðar skemmdir komu í ljós á búk vélarinnar þegar hún var hífð upp en þó voru það hreyflar vélarinnar hvað mest skemmdir, eða nánast ónýtir ef út í það er farið. Nokkur fangnaðarlæti brutust út þegar hjólin komu í ljós enda mikið í húfi fyrir eigendur vélarinnar. Allir starfsmenn sem komu að verkinu eiga hrós skilið en umfangsmikil verkefni sem þessi koma sjaldan upp og því voru allir á vettvangi reynslulausir hvað varðar það að flytja laskaða 30 tonna flugvél.

Forsaga málsins er sú að vélin brotlenti þegar hjól vélarinnar fóru ekki niður við lendingu í æfingaflugi. Fimm manns voru um borð og sluppu allir við meiðsl utan eins sem meiddist minni háttar og er talinn ökklabrotinn. Enn er unnið að rannsókn slyssins.