Fréttir | 22. desember 1999 | 19:46:00
FÍKNIEFNAFUNDUR Í LEIFSSTÖÐ

Tollverðir á Keflavíkurflugvelli fundu eitt og hálft kíló af hassi á Keflavíkurflugvelli s.l. þriðjudag. Fíkniefnin fundust á 42 gömlum karlmanni sem búsettur er í Danmörku og hann viðurkenndi við yfirheyrslur að vera eigandi efnisins. #split#Farþeginn, sem var að koma frá Kaupmannahöfn, hefur ekki komið áður við sögu fíkniefnamála. Hann var handtekinn og fluttur til yfirheyrslu hjá fíkniefnadeild lögreglunnar í Reykjavík.