Fréttir | 17. nóvember 1999 | 23:14:00
DAGLEGT BRAUÐ ÁLFTANNA

Álftirnar sem halda til á tjörninni á Fitjum hafa ekki átt sjö dagana sæla undanfarnar vikur. Miklar holræsaframkvæmdir hafa raskað ró þeirra, þó ekki svo mikið að þær hafa ekki flúið af hólmi. Daglega mætir fólk á Fitjarnar með brauð í poka til að færa þessum glæsilegu íbúum Fitjanna í svanginn. #split#