Gönguhátíð í Grindavík um verslunarmannahelgina
AF STAÐ á Reykjanesið - Menningar- og sögutengd gönguhátíð í Grindavík, verður á sínum stað um verslunarmannahelgina. Í tilefni af því að nú eru 100 ár frá því að hafist var handa við gerð akvegar til Grindavíkur verða gengnar nokkrar gamlar leiðir í og við Grindavík um verslunarmannahelgina 3. - 6. ágúst.
Föstudagur 3. ágúst:
Mæting kl. 20 við tjaldsvæði Grindavíkur. Gengið verður með leiðsögn um Járngerðarstaðahverfi, gamla bæjarhlutann í Grindavík í 1-2 tíma. Fróðleikur í Flagghúsinu í lok göngu. Aðgangur ókeypis.
Laugardagur 4. ágúst:
Mæting kl. 11 við tjaldsvæði Grindavíkur Genginn verður hluti af gömlu þjóðleiðinni milli Grindavíkur og Voga, Skógfellastígur. Til baka verður farinn hestaslóði. Gangan tekur um 3-4 tíma. Svæðið býður upp á stórbrotna náttúru, jarðfræði og sögu. Gott er að hafa með sér nesti og vera í góðum skóm. Þátttökugjald kr. 1000. Frítt fyrir börn.
Í lok göngu verður boðið upp á heilgrillað lamb á teini í Salthúsinu. Verð kr. 3.100
Sunnudagur 5. ágúst:
Mæting kl. 11 við golfskálann í Grindavík. Gengin verður hluti af gömlu þjóðleiðinni milli Grindavíkur og Hafna, Prestastígur frá Húsatóftum í Eldvörp og Árnastígur til baka, Gangan tekur um 3-4 tíma. Svæðið býður upp á stórbrotna náttúru, jarðfræði og sögu. Gott er að hafa með sér nesti og vera í góðum skóm. Þátttökugjald kr. 1000. Frítt fyrir börn.
Mánudagur 6. ágúst:
Mæting kl. 11 við bílastæði Bláa lónsins - Gengið með leiðsögn um hluta af gömlu þjóðleiðinni milli Grindavíkur og Njarðvíkur, Skipsstígur og með hlíðum Þorbjarnar til baka. Gangan tekur um 3-4 tíma. Svæðið býður upp á stórbrotna náttúru, jarðfræði og sögu. Gott er að hafa með sér nesti og vera í góðum skóm. Þátttökugjald kr. 1000. Frítt fyrir börn.
Boðið er upp aðgangseyri, 2 fyrir 1 í Bláa lónið í lok göngu.
Leiðsögumaður í ferðum er Sigrún Jónsd. Franklín, gsm 6918828.
Nánar upplýsingar um ferðir og/ef um breytingar er að ræða má sjá á www.grindavik.is og facebook „sjf menningarmiðlun".
- Mannlíf | 04. júní 2013 08:59Fyrsta ganga sumarsins
- Útivist | 26. ágúst 2012 04:00Metþátttaka í Reykjanesgöngum í sumar
- Mannlíf | 03. ágúst 2012 10:44Göngugarpar í Lambafellsklofa - myndir
- Útivist | 01. ágúst 2012 10:33Reykjanesgönguferðir ganga í Lambafellsklofa
- Útivist | 24. júlí 2012 16:48Ganga frá Stömpum að Reykjanesvita
- Útivist | 19. júlí 2012 16:47Gengu Sandakraveg - myndir


