„VERA“ komin til Keflavíkurflugvallar
Hin 69 ára gamla Lancaster sprengjuflugvél „VERA“ lenti á Keflavíkurflugvelli nú áðan. Þetta er í annað skiptið á aðeins fáum vikum sem vélin sækir Keflavíkurflugvöll heim.
Vélin er á leið til Kanada eftir að hafa verið á sýningarferðalagi um Evrópu síðustu vikur.
Vélin er aðeins önnur af tveimur flughæfum Lancaster-sprengjuflugvélum sem bandamenn notuðu í seinni heimsstyrjöldinni. Yfir 7000 slíkar vélar voru smíðaðar á sínum tíma.
Víkurfréttir fengu að skoða vélina í bak og fyrir þegar hún kom í fyrri heimsókn sína til Keflavíkurflugvallar en myndband frá lendingu hennar má sjá hér að neðan.