Föstudagur 29. apríl 2011 kl. 17:28

VefTV: Brunaæfing á flugvellinum með nýjan eldfugl

Slökkvilið flugvallarins var með æfingu í dag þar sem notaður var nýr eldfugl. Eldfugl er líkan af flugvél þar sem hægt að láta elda loga á þremur stöðum, báðum hreyflum og hjólastellinu. Þessi fugl var keyptur hingað til Íslands frá Noregi og kostar svona græja um 36 milljónir íslenskra króna.

Að brunaæfingu lokinni fór hópurinn að Bragganum sem er ný aðstaða fyrir vaktmenn slökkviliðsins en það þurfa alltaf að vera tveir menn út á velli á vakt. Þarna er geymsla fyrir einn stóran bíl og afþreyingaraðstaða fyrir starfsmenn. Að lokum var hópnum svo boðið í léttar veitingar í mötuneyti starfsmanna.

Hægt er að skoða fleiri myndir á ljósmyndavef Víkurfrétta með því að smella hér.

Myndir: Siggi Jóns