Mánudagur 26. febrúar 2024 kl. 14:57

Upplýsingafundur fyrir íbúa Grindavíkur í beinu streymi kl. 17:00

Í dag, mánudaginn 26. febrúar, kl. 17:00 til 19:00, heldur Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra upplýsingafund fyrir íbúa Grindavíkur. Fundurinn verður haldinn í Laugardalshöllinni og verður streymt og túlkaður á pólsku. Markmiðið er að upplýsa íbúa um stöðu jarðhræringa og innviða í og við Grindavík.  Fram hefur komið að staðan sé ekki góð og því er mikilvægt fyrir íbúa að fá réttar upplýsingar í máli og myndum.

Fundinum verður streymt hér

Dagskrá fundarins:

Sigríður Björk Guðjónsdóttir opnar fundinn, Embætti ríkislögreglustjóra

Freysteinn Sigmundsson, Háskóli Íslands

Kristín Jónsdóttir, Veðurstofa Íslands

Ari Guðmundsson, Verkís / Varnargarðar

Hallgrímur Örn Arngrímsson, Verkís / Jarðkönnun í Grindavík

Atli Geir Júlíusson, Grindavíkurbær / Frárennsli og almennt um stöðuna á innviðum Grindavíkurbæjar

Reynir Sævarsson, Efla / Rafmagn og heita vatnið

Úlfar Lúðvíksson, Embætti lögreglustjórans á Suðurnesjum

Fundarstjórn, Almannavarnir


Auk þessara aðila verða fulltrúar eftirtaldra á staðnum:

Vegagerðin

HS Orka

HS Veitur

Náttúruhamfaratrygging Íslands