Þetta sprengir internetið: Þegar sjónvarp verður bíó!
- Stórt sjónvarp og lítill bíll fá okkur til að brosa
Þegar gamla sjónvarpið gefur upp öndina þá verður að fá nýtt. Hjá Heimilistækjum og Tölvulistanum í Reykjanesbæ fást risastór sjónvörp með UHD myndgæðum, eitthvað sem ætti að vera til á öllum heimilum í dag.
Þessi ofurháskerputæki eru líka í risastórum kössum sem eiga að verja þau fyrir öllu hnjaski í flutningum frá verslun og heim í stofu.
Þegar þú ferð og kaupir stærsta sjónvarpið í búðinni þá er gott að hafa bíl sem rúmar allar tommurnar. Litlir grænir smábílar með bílstjóra og tveimur farþegum eru kannski ekki hentugasti mátinn til að flytja ofursjónvörp - og þó!
Við viljum strax koma á framfæri afsökunarbeiðni til þessa unga fólks sem gerði sitt besta til að koma risastórum kassanum inn í bílinn. Þau virtust skemmta sér vel við aðfarirnar. Þetta sjónvarp þeirra varð algjört bíó fyrir okkur á Víkurfréttum. Úr þessu öllu varð til stuttmynd sem við kjósum að kalla „Stórt sjónvarp - Lítill bíll“. Aðfarirnar voru bara of góðar til að sleppa við að fara á netið…