Þangálfar lifna við í Þekkingarsetrinu
„Það var þarinn sem leiddi okkur saman. Katrín kom til mín í heimsókn þegar ég vann í Náttúrustofu Suðvesturlands og var að vinna verkefni um fjörunytjar. Þegar ég svo byrjaði að vinna hjá Þekkingarsetrinu kemur upp sú hugmynd að setja upp listasýningu á neðri hæðinni. Mér dettur Katrín strax í hug og bið hana að lána okkur nokkrar grímur. Hugmyndin breyttist og úr varð fræðslu- og listasýningin Huldir heimar hafsins - ljós þangálfanna sem mun opna nú á sunnudaginn,“ segir Eydís Mary Jónsdóttir, staðgengill forstöðumanns Þekkingarseturs Suðurnesja í Sandgerði.
Sjónvarp Víkurfrétta kíkti á sýninguna um þangálfana og úr varð meðfylgjandi innslag.