Sunnudagur 11. apríl 2010 kl. 23:02

„Svekkjandi að sjá boltann dansa“

Keflvíkingar settu upp í síðustu sókn sem lauk með mjög erfiðu en líklegu þriggja stiga skoti Gunnars Einarssonar. Boltinn dansaði í innanverðum hringnum en vildi ekki ofan í. Hörður Axel tók frákastið og Njarðvíkingar brutu strax á honum. Hörður hitti úr fyrra vítinu en klikkaði úr því síðara, í frákastinu barst boltinn til Gunnars Stefánssonar sem lét vaða og hitti en leiktíminn var úti og lokatölur því 86-88 Njarðvíkingum í vil.


Gunnar sagði það svekkjandi að horfa á eftir boltanum dansa á körfuhrignum en ekki fara ofan í körfuna. Gunnar sagði að Keflvíkingar hafi hleypt Njarðvíkingum of langt frá sér og hafi misst einbeitingu, sérstaklega í 3ja leikhluta. Þar hafi Keflvíkingar fengið á sig ódýrar þriggja stiga körfur, sem hafi verið of stór biti fyrir Keflavík. „Við sýndum það í fjórða leikhluta að við áttum fullt erindi í að klára þennan leik,“ sagði Gunnar Einarsson í viðtali við Sjónvarp Víkurfrétta í meðfylgjandi myndskeiði.


Viðtal: Jón Björn Ólafsson
Video: Hilmar Bragi Bárðarson