Suðurnesjamagasín // 4. þáttur
Fjórði þáttur af frétta- og mannlífsþættinum Suðurnesjamagasín er kominn á vf.is
Í þættinum er tekið hús á Magnúsi Þórissyni veitingamanni á Réttinum í Keflavík, rætt við Dagnýju Gísladóttur sem er að innrétta íbúð að hætti Varnarliðsmanna á árunum 1996 til 2006. Þá tökum við einnig hús á Ásdísi Rögnu Einarsdóttur grasalækni í Keflavík.
Í síðari hluta þáttarins er menningarviku í Grindavík gerð skil, rifið í lóðin hjá Massa í Njarðvík og Klassart frá Sandgerði slær svo botninn í þáttinn með góðu lokalagi.