Mánudagur 4. mars 2013 kl. 21:30

Suðurnesjamagasín // 3. þáttur

Frétta- og mannlífsþátturinn Suðurnesjamagasín er kominn á vf.is. Þetta er þriðji þátturinn í þessari sjónvarpsþáttaseríu sem Víkurfréttir framleiða þar sem  púlsinn er tekinn á menningu, mannlífi og atvinnulífi Suðurnesja.

Í þættinum í kvöld segir Kjartan Þór Eiríksson, framkvæmdastjóri Þróunarfélags Keflavíkurflugvallar, áhorfendum í stuttu máli frá því samfélagi sem er á Ásbrú. Þess má geta að sérstakur þáttur um lífið á Ásbrú verður í Suðurnesjamagasíni á næstu vikum.

Við tökum hús á Lionsmönnum sem voru að undirbúa kútmagakvöld og Aníta Lóa Hauksdóttir, ungur dansari úr Njarðvík, tekur nokkur spor í þættinum og segir okkur frá Kínaferð sem hún heldur í nú í sumar. Þá eru svipmyndir frá Ragnarsmótinu í fótbolta, sem fram fór í Reykjaneshöllinni á dögunum.
Í síðari hluta þáttarins er rætt við Guðmund Bjarna Sigurðsson hjá vefhönnunarfyrirtækinu Kosmos & Kaos. Nettómótinu í körfubolta eru gerð góð skil og að endingu fáum við nokkur góð tóndæmi frá Hljóðnemanum sem fram fór í Andrews á dögunum.