Starfsmannafundi frestað og sorg meðal starfsmanna HSS (Video)
Starfsmannafundi Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja var frestað í dag í kjölfar fréttar Víkurfrétta um fyrirhugaðar uppsagnir starfsmanna og niðurskurð í starfsemi. Fundurinn hefur verið boðaður á morgun. Þá eru einnig þingmenn svæðisins og heilbrigðisráðherra væntanlegir til fundar við stjórnendur HSS.
Guðbjörg Sigurðardóttir, hjúkrunarfræðingur og formaður hjúkrunarráðs Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja, segir í viðtali við Víkurfréttir að sér finnist litið á Suðurnesjamenn sem annars flokks. Þá segir hún ástandið hjá starfsfólkinu dapurt og það sé sorgmætt og sjái ekki bjarta framtíð.
Ástandið hafi reyndar verið þannig í langan tíma og í mörg ár hafi stofnunin verið eins og nokkurs konar jó-jó og þannig sé staðan í dag. Starfsfólkið viti ekki hverjum eigi að segja upp en það sé búið að liggja í loftinu lengi að til uppsagna verði gripið.