Þriðjudagur 10. nóvember 2015 kl. 09:09

Stapi 50 ára - svipmyndir úr sögunni

Félagsheimilið Stapi í Njarðvík var vígt 23. október 1965. Þess var minnst með afmælishófi í Stapa á dögunum þar sem bæjarbúum var boðið til afmælisveislu á þessum tímamótum.

Byrjað var á framkvæmdum við Stapa í september árið 1958. Ungmennafélag Njarðvíkur og Kvenfélagið Njarðvík höfðu þá safnað í húsbyggingarsjóð í 9 ár, en aðaltekjulind félaganna voru skemmtanir í Krossinum. Myndað var sameignarfélag um byggingu Stapans og áttu Njarðvíkurhreppur og skátafélagið Víkverjar þar fulltrúa, auk ungmennafélagsins og kvenfélagsins.

Í 70 ára afmælisriti UMFN kemur fram að húsið hafi verið 1300 fermetrar að gólffleti, teiknað af Sigvalda Thordarsyni. Ákveðið var að fara þá leið í smíðinni að semja við iðnaðarmenn í stað þess að fara í útboð og skilaði það lægri byggingarkostnaði. Húsið var því að mestu byggt af heimamönnum og tók smíði þess í heild sjö ár og var kostnaður um 10 milljónir króna á þávirði

Við vígslu félagsheimilisins 23. október 1965 var greint frá því að nafn þess væri Stapi. Stapi er nú einn hluti Hljómahallar, ásamt Rokkasafni Íslands og Tónlistarskóla Reykjanesbæjar.

Tónlistarmaðurinn Valdimar kom fram í afmælishófinu, ásamt Ásgeiri Aðalsteinssyni gítarleikara. Hilmar Hafsteinsson körfuboltaþjálfari hjá UMFN í áratugi og stjórnarmaður ávarpaði samkomuna og rakti m.a. byggingarsögu Stapans og hvernig samtakamátturinn var í bæjarfélaginu við byggingu hússins. Þá flutti Kjartan Már Kjartansson bæjarstjóri ávarp.